|
|
 |
 |
|
 |
Tilgangur Tilgangur Auðlindar er að vernda þann þjóðararf sem felst í náttúru Íslands. Sjóðurinn mun standa vörð um náttúru og vistkerfi Íslands, vatnafar landsins og endurheimt fyrri landgæða. Það er markmið sjóðsins að efla virðingu fyrir ómetanlegum gæðum íslenskrar náttúru.
Fé sjóðsins skal varið í þágu markmiða hans með styrkjum til einstaklinga og félaga eða samkvæmt frumkvæði stjórnar. Forgang hafa verkefni sem hvetja til samvinnu milli einstaklinga og sjóða, við félög, fyrirtæki, stofnanir og landsyfirvöld. Sjóðurinn skiptist í áherslu- eða taksverkefni og nefnast þau fyrstu Votlönd og Assa. Votlönd er samnefnari fyrir verkefni um endurheimt votlendis og Assa er samnefnari fyrir verkefni sem lúta að verndun íslenska arnarstofnsins. Stjórn getur stofnað til annarra átaksverkefna. Heimilt er að nýta fjármuni sjóðsins í alþjóðlega samvinnu enda sé hún í samræmi við tilgang sjóðsins.
Upphæð styrks getur numið allt að 50% hluta kostnaðar við vinnu, tæki og kaup á aðföngum. Stjórn ákveður hverju sinni hvaða áhersluverkefni Auðlindar eru laus til umsóknar á hverjum tíma og tilgreinir það í auglýsingu.
Umsækjendur og ábyrgð Öllum er frjálst að senda inn umsókn hvort sem um er að ræða einstaklinga, félög, fyrirtæki eða opinbera aðila. Sum verkefni krefjast þess að umsækjendur hafi lögformlegan umráðarétt yfir því landi sem verkefnin taka yfir. Verkefni sem Auðlind styrkir eru undir forsjá og á ábyrgð styrkþega og þeir eru taldir ábyrgðarmenn. Auðlind veitir ráðgjöf og fjármagnar verkefnin að hluta og hefur jafnframt eftirlit með framvindu og metur árangur þeirra. Allir styrkir eru skattskyldir; fyrir lögaðila samkv. B-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignarskatt og fyrir einstaklinga skv. 1. málsl. 2 tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003. Umsóknir Auglýst er árlega eftir umsóknum um styrki úr sjóðum Auðlindar. Augýsingar skulu birtast bæði í fjölmiðlum og á vefsvæði sjóðsins www.audlind.org. Leitast verður til að birta auglýsingar sem víðast t.d. í helstu dagblöðum, Bændablaðinu, á vefsvæði Bændasamtakana www.bondi.is, á vefsvæði Náttúrufræðistofnunar Íslands www.ni.is, á vefsvæðum náttúrustofa og umhverfisstofnunar www.ust.is, svo eitthvað sé nefnt. Ennfremur má senda inn auglýsingar á vefsvæði sveitarfélaga á landinu. Auglýsing skal birtast eigi síðar en um miðjan janúar ár hvert og skal miða umsóknafrest við miðjan febrúar. Upphæð styrkja fer eftir þeim fjármunum sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunar á hverjum tíma. Umsækjendur eru hvattir til að fylla út umsóknarblað sjóðsins nákvæmlega en umsóknum verða að fylgja eftirfarandi lágmarksupplýsingar: * Heiti verkefnis og staðsetning * Nafn, heimilisfang, sími og netfang umsækjanda og ábyrgðarmanns * Upphæð sem sótt er um * Kennitala og bankareikningur umsækjanda * Tengiliður verkefnisins, ef annar en umsækjandi * Hnitmiðuð lýsing á verkefni; markmið, aðgerðir, tímaáætlun, * Kostnaðarliðir og kostnaðaráætlun (tafla) * Skýringar á einstökum kostnaðarliðum * Fjármögnunarliðir og fjármögnun (tafla) * Upplýsingar um mótframlög og styrki frá umsækjanda og öðrum * Annað sem umsækjandi óskar að koma á framfæri, s.s. listi yfir fylgigögn, umsagnaraðilar, lýsing á reynslu sambærilegra verkefna, yfirlýsing um fyrirhugaða nýtingu þess svæðis sem verkefnastyrkur nær til ef um votlendi er að ræða. * Óskar umsækjandi eftir að fá fylgiskjölin endursend (já/nei) * Dagsetning og undirskrift.
Ábyrðarmenn verkefna sem hljóta styrk þurfa að skrifa undir samning sem tekur til ákvæða um upphafs- og lokatíma verksins, framkvæmdaráætlun og hvernig greiðslu styrks skuli háttað. Einstök verkefni geta hlotið styrk til allt að fimm ára, enda fylgi umsókn tímasett kostnaðar- og verkáætlun. Styrkþegi þarf að skila áfangaskýrslu og endurskoðaðri áætlun í lok hvers árs á styrktímabilinu. Umsækjendum er velkomið að leita til Auðlindar varðandi frekari upplýsingar um verkefnastyrki og umsóknarferlið.
Styrkhæf verkefni Verkefni skulu tengjast markmiðum og tilgangi Auðlindar með ótvíræðum hætti. Við ákvörðun um styrkveitingar úr Votlöndum er einkum lögð áhersla á verndun og endurheimt votlendisvistkerfa til langframa og að endurheimtarverkefni séu líklegt til að skila árangri. Öll endurheimtarverkefni skulu miða að því að auka við heildarflatarmál votlendis á landinu. Votlendisendurheimt sem mótvægisaðgerð, t.d. vegna vegaframkvæmda eða ræktunar, verður einungis styrkt ef hið endurheimta votlendi er í það minnsta helmingi stærra en það sem raskað verður. Við ákvörðun um styrkveitingu úr Össu er einkum lögð áhersla á að verkefnin séu líkleg til að stuðla að vexti íslenska arnarstofnsins og verndun hans m.a. með endurheimt helstu búsvæða og arnaróðala. Styrkir úr Össu eru ekki veittir til mótvægisaðgerða vegna áhrifa annarra framkvæmda á búsvæði eða óðul arna.
Úrvinnsla umsókna Stjórn Auðlindar skipar þriggja manna nefnd sem fer yfir umsóknir og úthlutar styrkjum. Nefndin getur leitað umsagnar ýmissa sérfræðinga eða opinberra aðila telji hún þess þurfa. Öllum umsóknum verður svarað skriflega innan sex vikna frá því að umsóknafrestur rennur út.
Forgangsröðun umsókna Við forgangsröðun umsókna er m.a. tekið mið af eftirtöldum atriðum: * Að náttúruverndargildi og eða þjónustugildi þess votlendis eða búsvæðis sem um ræðir sé hátt og stuðli að jákvæðara kolefnisjafnvægi, vatnafari, líffræðilegri fjölbreytni, verndun tegunda í útrýmingarhættu o.s.frv. * Að líklegt sé að verndunar eða endurheimtaraðgerðir komi til með að bera tilætlaðan árangur. * Að umsókn sé í alla staði trúverðug og vel unnin. * Að markmið verkefnisins séu skýr og nákvæm grein gerð fyrir því landsvæði verkefnið spannar. * Að kostnaðaráætlun sé greinagóð og að í henni komi fram hlutfall og upphæð mótframlaga. * Að umsækjandi, sem áður hefur hlotið styrk, hafi unnið fyrra verkefni í samræmi við umsókn og skilað áfangaskýrslu.
Upphæð styrkja Heildar upphæð sem til úthlutunar er árið 2010 kr. 1.500.000,. Hámarksfjárhæð styrkja fer eftir fjölda umsókna en þó ekki hærri en kr 500.000.
Greiðsla styrks Þeir styrkþegar sem þess óska, geta fengið helming styrks greiddan við undirritun samnings. Eftirstöðvar eru greiddar að verkefni loknu þegar umsögn sjóðsstjórnar eða eftirlitsaðila um árangur verkefnisins liggur fyrir. Ef styrks er ekki vitjað eða skilyrði fyrir veitingu hans ekki uppfyllt fyrir lok þess árs sem styrkveiting var samþykkt fellur hún niður. Heimilt er að fresta verklokum ef haldbærar ástæður liggja til þess að mati sjóðsstjórnar. , , ,
|
 |
|
 |
|
 |
|