Auðlind - Náttúrusjóður
Forsíða Auðlind Votlönd Assa Fyrirspurn English
Úthlutunarreglur
Stjórn
Skipulagsskrá
Skipulagsskrá
Skipulagsskrá fyrir
Auðlind - Náttúrusjóð

1. grein.
Stofnendur hafa ákveðið að stofna sjóð til verndar íslenskri náttúru. Stofnendur eru (fjöldi) sbr fylgiskjal A, sem telst hluti skipulagsskrár þessarar.

2. grein.

Nafn sjóðsins er Auðlind - Náttúrusjóður. Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

3. grein.

Tilgangur sjóðsins er að vernda þjóðararfinn sem felst í náttúru Íslands og stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúrunnar. Sjóðurinn mun standa vörð um náttúru Íslands, vatn, vatnafar, endurheimt fyrri landgæða og vistkerfið í heild. Það er markmið sjóðsins að efla virðingu fyrir ómetanlegum gæðum íslenskrar náttúru.


4. grein.

Stofnfé sjóðsins er 750.000 krónur – sjöhundruð og fimmtíuþúsund krónur og leggja stofnendur það fram við stofnun hans, 1. desember 2008.
Sjóðinn ber að ávaxta með tryggilegum hætti og ber stjórn sjóðsins ábyrgð á fjárvörslunni. Heimilt er með sérstakri ákvörðun stjórnar að fela sérstökum fjárvörsluaðila vörslur fjármuna sjóðsins. Tekjur sjóðsins eru ávöxtunartekjur, framlög og gjafafé sem stjórnin leitar eftir. Gert er ráð fyrir að úthlutað verði árlega úr sjóðnum nema stjórn ákveði annað.




5. grein.

Þeir einstaklingar, félög og fyrirtæki sem leggja sérstök framlög í sjóðinn, að lágmarki 10.000 kr. til og með 1. desember 2008 eru stofnendur Auðlindar. Stjórn Auðlindar getur valið sér fulltrúaráð sem nefnist Vildarvinir. Vildarvinir skulu vera stjórn til ráðuneytis og stuðnings um hvaðeina sem stjórn óskar eftir.

6. grein.

Auðlind – Náttúrusjóður er sjálfseignarstofnun sem starfar samkvæmt skipulagsskrá þessari. Um sjóðinn gilda ákvæði laga nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Sauðárkróki á skipulagsskránni.

7. grein.

Fé sjóðsins skal varið í þágu markmiða hans með framlögum eða styrkjum til einstaklinga eða félaga samkvæmt umsóknum eða að frumkvæði stjórnar. Skulu styrkir miða að því að hvetja til átaks um verkefni í samvinnu við einstaklinga, félög, fyrirtæki, stofnanir og landsyfirvöld. Átaksverkefni verða innan sjóðsins og nefnast þau fyrstu Votlönd og Assa. Votlönd er samnefnari fyrir verkefni um endurheimt votlendis og Assa er samnefnari fyrir verkefni sem lúta að verndum arnarins. Stjórn getur stofnað til annarra átaksverkefna. Heimilt er að nýta fjármuni sjóðsins til að eiga samvinnu á alþjóðlegum vettvangi enda sé hún í samræmi við tilgang sjóðsins.

8. grein.

Stjórn sjóðsins skal skipuð sjö mönnum og sjö til vara. Varamenn eiga rétt til setu á stjórnarfundum og hafa þar tillögurétt. Tilgreindur varamaður er fyrir hvern aðalmann. Stjórnarmenn skulu skipaðir til þriggja ára í senn.
Á fyrsta ársfundi skv. 9. gr., árið 2009, skal sitjandi stjórn tilnefna þrjá stjórnarmenn til þriggja ára og þrjá varamenn þeirra. Næsta ár skal stjórn tilnefna tvo aðalmenn og tvo varamenn og þriðja árið tvo aðalmenn og tvo varamenn þeirra. Stjórn heldur fundi svo oft sem tilefni er til eða að beiðni a.m.k. tveggja stjórnarmanna. Stjórnarmenn fá ekki þóknun fyrir störf sín en greiða má þeim útlagðan kostnað vegna starfa sinna.

Fyrsta stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum úr hópi stofnenda, þeir eru:
Guðmundur Páll Ólafsson, kt:020641-3989, Neskinn 1, 340 Stykkishólmi,
Haraldur Sigurðsson, kt: 310539-4579, Bókhlöðustíg 10 340 Stykkishólmi,
Ívar Kristjánsson, kt: 011069-5099, Boðagranda 20, 107 Reykjavík
Orri Vigfússon, kt. 100742-2339, Grænuhlíð 11, 105 Reykjavík
Salvör Jónsdóttir, kt. 251259-2759, Fjörugranda 2, 107 Reykjavík,
Ragnhildur Sigurðardóttir kt. 260466-4299, Stokkseyrarseli, 801 Selfossi
Þórólfur Árnason, kt. 240357-5269, Bergstaðastræti 80, 101 Reykjavík



9. grein.

Ársfund Auðlindar skal halda fyrir 1. maí ár hvert. Til ársfundar skal boða með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Rétt til setu á ársfundi hefur stjórn ásamt varamönnum auk Vildarvina og verndara sjóðsins. Æðsta vald í málefnum sjóðsins hefur stjórnin og aðeins hún hefur atkvæðisrétt á ársfundum.

Á dagskrá ársfundar skal vera:

• Kjör fundarstjóra og annarra embættismanna fundarins.
• Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
• Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
• Tilnefning stjórnarmanna.
• Önnur mál.

10. grein.

Skipulagsskrá þessari verður ekki breytt nema með samþykki fimm stjórnarmanna hið minnsta enda fái skipulagsskrá þannig breytt samþykki viðeigandi stjórnvalds skv. lögum. 19/1988. Tillögur um breytingar skulu berast stjórn skriflega eigi síðar en viku fyrir ársfund og skuli þær liggja frammi á fundinum. Ekki er heimilt að breyta tilgangi sjóðsins skv. 3. gr.


11. grein.

Reikningsár sjóðsins er almanaksárið og skal stjórnin ráða löggiltan endurskoðanda til að endurskoða reikninga sjóðsins. Fyrsta reikningstímabil sjóðsins er frá stofnun hans 24 apríl 2008 til 31 desember 2008. Endurskoðaðan reikning ásamt skýrslu stjórnar um hvernig fé sjóðsins var ráðstafað á árinu skal senda til Ríkisendurskoðunar eigi síðar en 30. júní ár hvert.

12. grein.
Stjórnin getur valið sérstaka verndara sjóðsins sem hefur rétt til setu á stjórnarfundum Auðlindar og tillögurétt. Fyrsti verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir.

13. grein.

Stjórn sjóðsins er heimilt að ráða framkvæmdastjóra, starfsmenn og verktaka til að vinna að markmiðum og verkefnum sjóðsins. Framkvæmdastjóri hefur umsjón með almennum verkefnum og situr fundi sjóðsins sem ritari og hefur tillögurétt án atkvæðisréttar.

14. grein.

Sjóðurinn verður ekki lagður niður nema með samþykki allra stjórnarmanna. Skulu eignir hans þá renna óskiptar til félagasamtaka eða stofnana er vinna að markmiðum sambærilegum þeim sem sjóðurinn hefur, samkvæmt ákvörðun stjórnarinnar. Leita skal staðfestingar sýslumannsins á Sauðárkróki á niðurlagningu sjóðsins.


Reykjavík, 1. desember, 2008.


Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkv.lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr.19/1988.
,
© Allur réttur áskilinn 2008, Auðlind - Náttúrusjóður, Netfang: audlind@audlind.org